Hrossaræktarfundur í kvöld í Rangárhöllinni
Almennir fundir í fundarröð stjórnar hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hrossaræktarinnar fara nú fram á næstu misserum víðsvegar um land.
Í kvöld þriðjudaginn, 11. febrúar, verður annar fundurinn í fundaröðinni haldinn í Rangárhölinni á Hellu og hefst hann klukkan 20:00.
Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
- Málefni hrossabænda
- Notkun keppnisdóma í kynbótamatinu
- Þróun kynbótadómsins
- Hrossaræktin almennt
- Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfinni.
Fulltrúar hrossabænda og fagráðs, þau Nanna Jónsdóttir formaður stjórnar hrossabænda og fagráðs og Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur verða
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.