Glódís Rún og Kamban sigurvegarar barnaflokks – myndir
Ljúfa Ljúfsstúlkan Glódís Rún Sigurðardóttir fór með sigur af hólmi í stórkostlegum A-úrslitum í barnaflokki en hún sat Kamban frá Húsavík af miklu öryggi. Guðmar Freyr Magnússon fór mikinn á stökkinu og hleypti hestinum Frama frá Íbishóli upp í annað sæti. Börnin voru hver öðrum glæsilegri í sólinni á Vindheimamelum.
Úrslit urðu eftirfarandi
1 Glódís Rún Sigurðardóttir / Kamban frá Húsavík 8,83
2 Guðmar Freyr Magnússun / Frami frá Íbishóli 8,68
3 Ingunn Ingólfsdóttir / Hágangur frá Narfastöðum 8,65
4 Viktor Aron Adolfsson / Leikur frá Miðhjáleigu 8,59
5 Þórdís Inga Pálsdóttir / Kjarval frá Blönduósi 8,48
6 Gyða Helgadóttir / Hermann frá Kúskerpi 8,42
7 Eva Dögg Pálsdóttir / Heimir frá Sigmundarstöðum 8,31
8 Birta Ingadóttir / Freyr frá Langholti II 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH