Sumarliðabær 2 er hrossaræktarbú ársins

  • 7. nóvember 2026
  • Fréttir

Ragna frá Sumarliðabæ 2 og Teitur Árnason á Landsmóti. Ljósmynd: Þórhildur - Mystery horses

Ræktunarbú ársins heiðruð á fagráðstefnunni Hrossarækt 2026

Sumarliðabær 2 er hrossaræktarbú ársins 2026 á íslandi. Ræktendur þar á bæ eru Bigir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir.

Ti að afmarka valið við hrossaræktarbú ársins koma til greina öll hrossaræktarbú sem sýndu fjögur eða fleiri hross í fullanaðardómi á árinu þar sem að a.m.k. 2 hljóta 8,00 eða hærra í aðaleinkunn. Aðaleinkunnir eru þá leiðréttar fyrir aldri og kyni líkt og gert er við útreikninga kynbótamatsins. Afkvæmahross sem ná lágmörkum til verðlauna á árinu telja þá einnig til stiga.

Frá Sumarliðabæ 2 töldu 8 hross til verðlauna og er meðal einkunn þeirra 8,63.

Alda frá Sumarliðabæ 2 – 8,81
Nóta frá Sumarliðabæ 2 – 8,78
Skuggi frá Sumarliðabæ 2 – 8,67
Ragna frá Sumarliðabæ 2 – 8,64
Líf frá Sumarliðabæ 2 – 8,54
Bríet frá Sumarliðabæ 2 – 8,50
Tónlist frá Sumarliðabæ 2 – 8,43
Sóllilja frá Sumarliðabæ 2 – 8,18

Alls voru það þréttan bú sem voru tilnefnd í ár og eru þau í stafrófsröð:

Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
Berg, Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson
Efsta-Sel, Daníel Jónsson, Bertha María Waagfjörð og Hilmar Sæmundsson
Fet, Anton Páll Níelsson, Bylgja Gauksdóttir og Ólafur Andri Guðmundsson
Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundsson, Valgerður Þorvaldsdóttir, Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir
Grund II, Ólöf Stefánsdóttir og Örn Stefánsson
Hemla II, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og fjölskylda
Hestklettur/Prestbær, Inga Jenssen, Ingar Jenssen, Sigríður Gunnarsdóttir og Þórarinn Eymundsson
Margrétarhof, Reynir Örn Pálmason og Montan fjölskyldan
Skálakot, Guðmundur J. Viðarsson, Jóhanna S. Þórhallsdóttir og fjölskylda
Skipaskagi, Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir og fjölskylda
Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link