Gleði og Sæmd í Syðra-Langholti
Gleði frá Kaldbak er stofnhryssa ræktunarinnar í Syðra-Langholti og hlaut hún heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár. Mynd: Úr einkasafn
Í Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi snýst lífið um hross og hefur gert það lengi. Þar er ný reiðhöll risin og hesthús á leiðinni. Stofnhryssan Gleði hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár og dóttir hennar Sæmd fór alla leið í A-úrslit á Landsmóti í sumar. Nöfnin gætu varla átt betur við.
Hjónin Arna Þöll Sigmundsdóttir og Þorsteinn Gunnar Þorsteinsson halda um taumana í Syðra-Langhlti ásamt Sigmundi, föður Örnu. Dóttirin Svava Marý er svo aldrei langt undan.
Byggt á grunni Sigmundar
Arna ólst upp við hestamennsku í Syðra-Langholti þar sem faðir hennar hefur boðið upp á hestaferðir frá árinu 1987. Þorsteinn útskrifaðist sem tamningamaður frá Hólum árið 2009. Árið 2016 komu hjónin inn í reksturinn og síðan hefur starfsemin tekið miklum breytingum.
Þau hafa byggt á grunninum sem Sigmundur lagði en sett sitt eigið mark á starfsemina. Í fyrstu snerist þetta einfaldlega um betri vinnuaðstöðu og að geta sinnt hrossunum vel allt árið. Svo kom í ljós að möguleikarnir voru miklu fleiri en þau höfðu gert sér grein fyrir. Hraðinn kom þeim sjálfum á óvart og framtíðarsýnin hefur stækkað jafnt og þétt.

Sigmundur Jóhannesson hóf hestaferðir í Syðra-Langholti árið 1987. Mynd: Úr einkasafni
Engar fleiri ferðir á Flúðir
Það tekur sinn toll að sækja reiðhöll annað nokkrum sinnum í viku. Sú var raunin hjá hjónunum sem fóru reglulega með hrossin í reiðhöllina á Flúðum. Það kostaði bæði tíma og peninga og aðstaðan heima var ekki lengur samkeppnishæf.
Upphafið fólst í því að gera upp gistiheimili sem þau áttu á jörðinni og seldu síðar. Það gerði þeim kleift að fara af stað í framkvæmdirnar. Nánir vinir fjölskyldunnar, Páll Jóhann Pálsson og Guðmunda Kristjánsdóttir, slógust svo í hópinn en vinátta þeirra og samstarf í hestamennskunni á sér langa sögu. „Það hefur verið okkur ómetanlegt að hafa þau með okkur í þessu.“
Nú skiptir engu hvernig viðrar, hrossin eru þjálfuð markvisst allt árið og þjálfunin er stöðugri en áður. „Það er í raun erfitt að lýsa því hversu mikil og jákvæð breyting þetta hefur verið fyrir okkur.“ Hamarinn hefur þó ekki verið lagður frá sér því hesthús við reiðhöllina á að verða tilbúið í vor.

Með nýju reiðhöllinni er hægt að þjálfa allt árið óháð veðri. Mynd: Úr einkasafni
Hvert hross fær sinn hraða
Þorsteinn járnar, temur og þjálfar með dyggri aðstoð Svövu Marý. Þar er þolinmæðin í fyrirrúmi. Nálgunin byggist á virðingu og því að mæta hverju hrossi þar sem það er statt. „Öll hross eru ólík og því leggjum við áherslu á að aðlaga þjálfunina að þörfum, getu og skapgerð hvers og eins.“
Hrossin eiga að skilja verkefnin og vera sátt í vinnunni. Ef þau þurfa meiri tíma til að þroskast þá fá þau hann. Útkoman á að vera heilbrigð og vel þjálfuð hross sem nýtast eigendum sínum vel.

Svava Marý og Þyrla frá Haukholtum hafa keppt mikið saman í sumar. Mynd: Björk media
Gleðin á rætur sínar í Gleði
Þegar talið berst að ræktuninni kemur eitt nafn fyrst upp. Gleði frá Kaldbak, ræktuð af Sigmundi, er stofnhryssa búsins. Heiðursverðlaunin í ár eru engin tilviljun því hún hefur gefið fimm fyrstu verðlauna hryssur. Þrjár þeirra eru komnar í ræktun og ein í keppni.
Uppskriftin að góðu hrossi í Syðra-Langholti er skýr. Það á að vera heilbrigt, geðgott og viljugt, með góðar gangtegundir og þannig að allir geti riðið því. Stóðhestar eru valdir af kostgæfni með tilliti til byggingar, ganghæfni, geðslags, ætternis og árangurs afkvæma. Hjónin halda tryggð við línurnar sem hafa reynst vel en eru óhrædd við að prófa nýtt.
Árið 2017 sögðu þau Bændablaðinu frá því markmiði að fjölga góðum hrossum í ræktuninni. Það virðist hafa gengið eftir. Sumarið 2025 fóru fjögur hross í kynbótadóm og hlutu öll fyrstu verðlaun. Í sumar endurtók leikurinn sig.
Dagur í Syðra-Langholti
Morgnarnir byrja á gjöf í hesthúsinu. Svo eru leiguhrossin rekin heim og tamningahrossin sótt út áður en sjálf vinnan hefst. Hestaferðirnar eru á föstum tímum frá 1. apríl til 1. nóvember. Á veturna snýst allt um tamningar og þjálfun.
Verkaskiptingin er skýr. Arna heldur utan um skipulag, bókhald og bókanir og skýst í hesthúsið þegar færi gefst. Sigmundur sér um girðingar, útigang og viðhald og grípur í það sem til fellur. Hjónin segjast líka hafa verið einstaklega heppin með starfsfólk.
Að byggja upp fyrirtæki og reka það um leið er ekki alltaf dans á rósum. Fjárfestingar, óvænt verkefni og veðurfar hafa reynt á. Hjónin segja þó að vegferðin hafi styrkt samband þeirra. Þau hafa lært að treysta hvort öðru og nýta ólíka styrkleika sína.
Fermingargjöf sem fór á Landsmót
Svava Marý hefur verið með hestabakteríuna frá unga aldri. Eftir skóla og körfuboltaæfingar liggur leiðin gjarnan beint í hesthúsið og þá skiptir engu hvað klukkan er eða hvernig viðrar. Hún hefur sótt námskeið og einkatíma og drukkið í sig það sem þjálfararnir hafa kennt henni.
Þegar Svava Marý fermdist gaf Sigmundur afi henni Sæmd frá Syðra-Langholti. Hryssan er undan Gleði frá Kaldbak og Trymbli frá Stóra-Ási og er nú sex vetra með fyrstu verðlaun. Óhætt er að segja að gjöfin hafi hitt í mark. Þær stöllur hófu keppnisferilinn síðasta vetur og strax í sumar voru þær komnar í A-úrslit í fimmgangi ungmenna á Landsmóti.
Sæmd er þó ekki eina keppnishrossið hennar. Í sumar hefur Svava Marý einnig keppt mikið á Þyrlu frá Haukholtum.
Foreldrarnir leyna ekki stoltinu. Svava Marý tekur virkan þátt í daglegum störfum og metnaður hennar smitar út frá sér.

Svava Marý og Sæmd frá Syðra-Langholti á skeiði. Hryssan var fermingargjöf frá afa hennar. Mynd: Draumfaramyndataka
Litlu sigrarnir skipta máli
Hvað hafa hjónin lært á þessari vegferð? Að góðir hlutir gerast hægt og að fjölskylda og vinir skipta öllu máli. Þeim sem vilja feta svipaða slóð ráðleggja þau að gefa sér tíma í undirbúning og setja sér raunhæf markmið. Þau mæla með því að leita ráða hjá reynslumiklu fólki og vera tilbúin að leggja mikið á sig. Ekki megi þó gleyma að njóta ferðarinnar og fagna litlu sigrunum.
Framundan er að halda áfram að bæta aðstöðuna án þess að tapa persónulegu þjónustunni. Efst á óskalistanum er að sjá ræktunina eflast og eigin hross ná árangri. Hjónin eru þakklát fyrir að hafa fengið að byggja þetta upp með Sigmundi.
„Framtíðin er björt og við erum spennt fyrir komandi tímum.“
Margareterhof er selt
Fundaferð öryggisnefndar LH