Gæðingamót Fáks: Reynslan skilaði sigri – video
Gæðingamóti Fáks lauk á úrslitum í A flokki gæðinga á sunnudagskvöld.
Keppnisreynsla Sigurbjarnar Bárðarsonar og Stakks frá Halldórsstöðum skilaði þeim sigri en þeir hlutu í lokaeinkunn 8,93. Sigurður Vignir Matthíasson kom þremur hestum inn í úrslit, og kaus að sitja Mátt frá Leirubakka sjálfur en Vignir Siggeirsson sat Óm frá Hemlu II, sem hann ræktaði. Þá sat tengdafaðir Sigurðar, Ragnar Hinriksson sinn eigin hest, Hring frá Fossi í úrslitunum. Þá kepptu tveir knapar úr ungmennaflokki í úrslitunum, systkinin Teitur og Agnes Hekla Árnabörn.
Meðfylgjandi er myndskeið frá úrslitunum.
1 Stakkur frá Halldórsstöðum / Sigurbjörn Bárðarson 8,931
2 Ómur frá Hemlu II / Vignir Siggeirsson 8,716
3 Sturla frá Hafsteinsstöðum / Hinrik Bragason 8,693
4 Máttur frá Leirubakka / Sigurður Vignir Matthíasson 8,691
5 Týr frá Litla-Dal / Sigurbjörn Viktorsson 8,607
6 Þulur frá Hólum / Teitur Árnason 8,573
7 Hringur frá Fossi / Sigurður Vignir Matthíasson 8,462
8 Gammur frá Skíðbakka III / Agnes Hekla Árnadóttir 8,162
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH