Upplýsingar varðandi Opið Íþróttamót Hrings

  • 18. maí 2011
  • Fréttir
Upplýsingar varðandi Opið Íþróttamót Hrings

„Eins og áður hefur komið fram er fyrirhugað að halda Íþróttamót Hrings nk. laugardag 21.maí. Mikill áhugi er fyrir mótinu og skráning mjög góð. Annað er uppi á teningnum hvað varðar veðurspá fyrir okkar svæði, því hefur mótanefnd Hrings ákveðið að taka endanlega ákvörðun um mótið fimmtudagskvöld 19.maí. Við bendum keppendum á að frestur til greiðslu á skráningargjöldum verður seinkað til föstudags 20. maí kl 19:00.

Við munum setja inn upplýsingar á heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net á fimmtudagskvöld (um kl 21:30),“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Hrings

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link