Framundan í vikunni

Það er nóg um að vera í keppnishestaheiminum þessa daganna
Það er nóg um að vera í hestamennskunni og er þessi vika engin undantekning. Eiðfaxi ætlar að setja hér niður helstu viðburði vikunnar. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það.
Mánudagur 10. mars
- Keppt er í gæðingalist í 1. deildinni í hestaíþróttum
- Annað hallarmót Háfeta og Ljúfs
Fimmtudagur 13. mars
- Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts, heldur áfram en nú verður keppt í slaktaumatölti. Mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV,
Föstudagur 14. mars
- Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram en komið er að keppni í gæðingalist.
Laugardagur 15. mars
- Keppt verður í fimmgangi í Áhugamannadeild Norðurlands en keppni fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Mótið verður sýnt í beinni í opinni dagskrá á EiðfaxaTV, Sjónvarpi Símans og Vodafone.
- KB mótaröðin en keppt er í tölti í Faxaborg í Borgarnesi
- Þriðja vetrarmót Harðar
- Annað vetrarmót Sleipnis
- Þrígangur í Nesoddahöllinni
Sunnudagur 9. mars
- Fyrsta mót í Æsku Suðurlands
- Opið tölumót Harðar