Dagskrá yfirlitssýningar á Sörlastöðum

  • 26. maí 2011
  • Fréttir
Dagskrá yfirlitssýningar á Sörlastöðum

Yfirlitssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum fer fram dagana 28. og 29. maí, næstkomandi laugardag og sunnudag að er fram kemur í tilkynningu frá Búnaðarsambandi Suðurlands.

Skipulagning þessara daga og röð flokka er eftirfarandi:

Laugardagur, kl. 8:00.
7v. og eldri hryssur
Hádegishlé
6v. hryssur.
Kaffihlé
5v. hryssur.
(Áætluð sýningarlok á laugardegi milli kl. 20 og 21).

Sunnudagur, kl. 9:00.
4v. hryssur
4v. hestar
Hádegishlé
5v. hestar
6v. hestar
Kaffihlé
7v. og eldri hestar
(Áætluð sýningarlok á sunnudegi milli kl. 18 og 19).

Hestakostur á sýningunni er fyrnasterkur svo sem áhugasamir notendur W-Fengs hafa væntanlega þegar áttað sig á. Það er því vert að hvetja hrossaræktaráhugafólk sérstaklega til að líta við á Sörlastöðum um helgina til að sjá fjöldann allan af glæsilegum gripum og afkastahrossum í samanburði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link