Mídas og glæsileg afkvæmasýning Gára – video
Hér má sjá brot af atriði af stórsýningunni „Orri í 25 ár“, þar sem gæðingurinn Mídas frá Kaldbak fór mikinn í afkvæmasýningu Gára frá Auðsholtshjáleigu.
Mídas er greinilega í góðri þjálfun hjá knapa sínum Steingrími Sigurðssyni og sigruðu þeir fjórgangsmót Rangárhallarinnar fyrr í vetur.
Afkvæmi Gára eru gullfalleg eins og klárinn sjálfur en samkvæmt gagnagrunninum World Fengur eru til 277 afkvæmi undan honum, þar af hafa 58 afkvæmi komið fyrir dóm, og stefna eigendur með Gára í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár.
Í næsta tölublaði Eiðfaxa, sem kemur út eftir helgi, greina nokkrir valinkunnir fagmenn áhrif Orra frá Þúfu á íslenska hrossarækt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH