Glæsisýningar í B-flokki

  • 25. júní 2012
  • Fréttir
Glæsisýningar í B-flokki

Þau eru glæsileg, tilþrifin sem sjást hér á Hvammsvelli, þar sem forkeppni  í B-flokki gæðinga fer fram. Dómarar hafa ekki sparað stóru tölurnar.

Sleipnisbikarhafinn Álfur frá Selfossi hlaut t.a.m. einkunnina 8,82 og er sem stendur í öðru sæti. Hann er setinn af eiganda sínum Christinu Lund.

Þá skaust hryssan Krít frá Miðhjáleigu og Leó Geir Arnarsson í efsta sæti þegar þau hlutu einkunnina 8,92. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link