Stiklað á siðareglum og leiðara í máli og myndum
Dómaramálin verða í brennidepli á ráðstefnu sem Landsbúnaðarháskóli Íslands stendur fyrir í félagsheimili Fáks þriðjudagskvöldið 06.des kl. 19.
Pjetur N. Pjetursson stjórnarmaður og formaður fræðslunefndar í HÍDÍ, hestaíþróttadómarafélagi Íslands, er einn framsögumanna á ráðstefnunni.
Hann mun í erindi sínu snerta á margvíslegum málefnum sem snerta íþróttadómara. „Minnst verður á Leiðarann sem er „biblía“ hvers dómara og handhægt gagn fyrir keppendur. Greint verður frá menntun og upprifjun dómara og stiklað á Siðareglum. Fjölmargar skýringarmyndir sem varða dómaramál,“ segir Pjetur og hvetur alla dómara, keppendur og mótshaldara til að mæta. „Sjón er sögu ríkari.“
Auk Pjeturs munu Guðlaugur Antonsson, Sigurbjörn Bárðarson, Olil Amble og Lárus Ástmar Hannesson taka til máls og má búast við líflegum umræðum fundargesta að framsöguerindum loknum.
Þessu tengt:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH