Lengdur skráningarfrestur
Stjórn og fræðslunefnd GDLH auglýsir lengri skráningarfrest fyrir Ný- og Landsdómarapróf, en skráningafrestur fyrir bæði próf er 3. mars næstkomandi.
Nýdómarapróf gæðingadómara mun fara fram helgina 14.-16 mars og dagana 23.-24. apríl. Skráningagjald er kr. 65.000.
Landsdómarapróf gæðingadómara mun fara fram helgina 14.-16 mars. Skráningargjald er kr. 45.000 kr.
Stjórn GDLH minnir hugsanlega þátttakendur á að mörg hestamannafélög styðja við þátttöku félagsmanna á dómaranámskeiðum og hvetjum við þátttakendur til að skoða slíka möguleika.
Skráning á bæði námskeið fer fram í gegnum netfangið [email protected]. Staðfestingagjald fyrir bæði námskeið er 25.000 kr. og skal greiðast inn á eftirfarandi reikning eigi síðar en 3. mars næstkomandi:
Bankaupplýsingar: 0526-26-42110
kt: 421008-0940
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH