Skeiðfélagið Vel heppnaðir fyrstu Skeiðleikar ársins

  • 15. maí 2025
  • Fréttir

F.v. Einar Ásgeirsson fyrir hönd Fóðurblöndunnar, Sigursteinn Sumarliðason og Konráð Valur Sveinsson

Nýjir hestar og ungir knapar

Fyrstu skeiðleikar ársins fóru fram í gærkvöldi samhliða WR íþróttamóti Sleipnis á Brávöllum á Selfossi.  Skeiðfélagið á veg og vanda að framkvæmd skeiðleikanna og voru þeir í beinni útsendingu á sjónvarpi Eiðfaxa. Aðalstyrktaraðilar Skeiðfélagsins eru Fóðurblandan og Hrímnir sem gáfu verðlaun til efstu knapa í hverri keppnisgrein.

Góð skráning var á leikanna og sérstaka athygli blaðamanns vakti hversu margir ungir knapar tóku þátt auk margra nýrra hrossa, gefur þetta góð fyrirheit um komandi keppnistímabil og framtíðina í skeiðgreinum.

Niðurstöður

Í 250 metra skeiði var það Krókus frá Dalbæ setinn af Sigursteini Sumarliðasyni sem hraðast fór á tímanum 21,92 sekúndum. Frábær byrjun á keppnistímabilinu hjá þeim sem ætla sér sjálfsagt mikið á þessu ári. Annar varð Kastor frá Garðshorni á Þelamörk og Konráð Valur Sveinsson á tímanum 22,37 og í því þriðja varð Daníel Gunnarsson á Kló frá Einhamri á 22,85 sekúndum.

í 150 metra skeið voru þeir Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II og Konráð Valur Sveinsson á kunnulegum slóðum og sigruðu keppinauta sína á tímanum 14,27 sekúndum. Annar varð Grunnur frá Lækjarbrekku II og Þorgeir Ólafsson á tímanum 14,30 sekúndum og í þvi þriðja Birna Olivia Ödqvist á Sölku frá Fákshólum á 14,77 sekúndum.

Efstu knapar í 150 metra skeiði ásamt Einari Ásgeirssyni

Reynsluboltar röðuðu sér svo í efstu þrjú sætin í 100 metra skeiði. Besta tíma kvöldsins átti Ingibergur Árnason á Sólveigu frá Kirkjubæ á 7,50 sekúndum. Sveinn Ragnarsson varð annar á Kvisti frá Kommu á 7,64 sekúndum og þriðji varð Erlendur Ari Óskarsson á Örk frá Fornusöndum á 7,70 sekúndum.

Lávarðardeildin í 100 metra skeið

 

Skeið 250m P1
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 21,92
2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 22,37
3 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 22,85
4 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 23,97
5 Þorgils Kári Sigurðsson Flugdís frá Kolsholti 3 24,01
6 Matthías Sigurðsson Magnea frá Staðartungu 24,06
7 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 24,09
8 Erlendur Ari Óskarsson Dimma frá Skíðbakka I 24,16
9 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Glitnir frá Skipaskaga 24,37
10 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 24,72
11 Guðmundur Ásgeir Björnsson Gnýr frá Gunnarsholti 25,75
12-15 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 0,00
12-15 Teitur Árnason Styrkur frá Hofsstaðaseli 0,00
12-15 Ólafur Örn Þórðarson Kleópatra frá Litla-Dal 0,00
12-15 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gnýr frá Brekku 0,00

 

Skeið 150m P3
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,27
2 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 14,30
3 Birna Olivia Ödqvist Salka frá Fákshólum 14,77
4 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 14,97
5 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 15,24
6 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Glitra frá Sveinsstöðum 15,45
7 Guðmundur Björgvinsson Svala frá Rauðalæk 15,46
8 Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi 15,73
9 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík 15,95
10 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað 16,01
11 Erlendur Ari Óskarsson Hrafnkatla frá Ólafsbergi 16,19
12 Guðmundur Ásgeir Björnsson Reyr frá Hárlaugsstöðum 2 16,40
13 Kjartan Ólafsson Von frá Borgarnesi 16,96
14 Védís Huld Sigurðardóttir Saga frá Sumarliðabæ 2 17,66
15 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 18,62
16-23 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 0,00
16-23 Sigurður Dagur Eyjólfsson Gjöf frá Ármóti 0,00
16-23 Ólafur Örn Þórðarson Brandur frá Skák 0,00
16-23 Arnar Bjarki Sigurðarson Sóley frá Litlalandi 0,00
16-23 Bjarni Bjarnason Drottning frá Þóroddsstöðum 0,00
16-23 Vigdís Anna Hjaltadóttir Hlíf frá Strandarhjáleigu 0,00
16-23 Ragnar Snær Viðarsson Stráksi frá Stóra-Hofi 0,00
16-23 Daníel Gunnarsson Skálmöld frá Torfunesi 0,00

 

Flugskeið 100m P2
Sæti Knapi Hross Tími
1 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ 7,50
2 Sveinn Ragnarsson Kvistur frá Kommu 7,64
3 Erlendur Ari Óskarsson Örk frá Fornusöndum 7,70
4 Þorgils Kári Sigurðsson Faldur frá Fellsási 7,70
5 Hinrik Ragnar Helgason Stirnir frá Laugavöllum 7,72
6 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti 7,78
7 Teitur Árnason Friðsemd frá Kópavogi 7,80
8 Benjamín Sandur Ingólfsson Fáfnir frá Efri-Rauðalæk 7,86
9 Daníel Gunnarsson Smári frá Sauðanesi 7,89
10 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Snædís frá Kolsholti 3 8,01
11 Þorbjörn Hreinn Matthíasson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 8,05
12 Benedikt Ólafsson Vonardís frá Ólafshaga 8,06
13 Kolbrún Sif Sindradóttir Gná frá Borgarnesi 8,07
14 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti 8,12
15 Hjörvar Ágústsson Orka frá Kjarri 8,15
16 Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 8,21
17 Erlendur Ari Óskarsson Spes frá Stóra-Hofi 8,22
18 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 8,24
19 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Kjarkur frá Feti 8,33
20 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað 8,36
21 Marie-Josefine Neumann Berta frá Bakkakoti 8,42
22 Finnur Jóhannesson Tinna Svört frá Glæsibæ 8,59
23 Valdís Björk Guðmundsdóttir Hveragerður frá Brekku 8,59
24 Unnur Rós Ármannsdóttir Næturkráka frá Brjánsstöðum 8,66
25 Helgi Þór Guðjónsson Áróra frá Hrafnsholti 8,90
26 Svanhildur Guðbrandsdóttir Pittur frá Víðivöllum fremri 9,05
27 Svala Björk Hlynsdóttir Þóra Dís frá Auðsholtshjáleigu 9,36
28 Ísólfur Ólafsson Sólstjarna frá Hárlaugsstöðum 2 9,39
29 Katrín Ósk Kristjánsdóttir Lína frá Miklaholtshelli 9,50
30 Jón Guðmundsson Brá frá Gunnarsholti 10,09
31 Erlín Hrefna Arnarsdóttir Skíma frá Ási 2 13,18
32-40 Ragnar Snær Viðarsson Ópall frá Miðási 0,00
32-40 Hákon Þór Kristinsson Smekkur frá Högnastöðum 0,00
32-40 Konráð Valur Sveinsson Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði 0,00
32-40 Larissa Silja Werner Fimma frá Kjarri 0,00
32-40 Sigurður Dagur Eyjólfsson Gjöf frá Ármóti 0,00
32-40 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli 0,00
32-40 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gnýr frá Brekku 0,00
32-40 Þorgeir Ólafsson Væta frá Leirulæk 0,00
32-40 Gabríela Máney Gunnarsdóttir Þróttur frá Miðfelli 2 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar