Hugmyndir að breyttu formi yfirlitssýninga

  • 1. nóvember 2011
  • Fréttir
Hugmyndir að breyttu formi yfirlitssýninga

Inntökuskilyrði í einstaklingssýningar kynbótahrossa á Landsmóti 2012 verða ákveðin í desember, en ljóst er að þau munu hækka, að minnsta kosti í einhverjum flokkum. Miðað verður við að 200 hross verði í einstaklingssýningum eins og áður, en í fyrra náðu 249 hross lágmörkum, 232 þeirra mættu til dóms.

Á síðasta fundi Fagráðs í hrossarækt komu fram hugmyndir að breyttu formi á yfirlitssýningum kynbótahrossa á Landsmóti, sem miðar að því að spara tíma og gera yfirlitssýningarnar áhorfendavænni.

Hugmyndirnar miða að því að fimm hross verði sýnd í einu holli á hringvelli og yrði sýningin með svipuðu sniði og afkvæmasýningar. Riðnir yrðu þrír hringir á vellinum og einn sprettur farinn á beinni braut.

Ekkert hefur þó verið ákveðið í þessum efnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link