Úrslitakvöld Stable-quiz

  • 17. apríl 2013
  • Fréttir
Úrslitakvöld Stable-quiz

„Nú er komið að loka – og úrslitakvöldinu á Spurningakeppni hestamannafélaganna „Stable-quiz“ en Fimmtudaginn 18.apríl mætast Fákur og Hörður og keppa um farandbikarinn fína.

Spáð er harðri og skemmtilegri keppni en í liðinum eru menn sem eru nánast nördar þegar að kemur að ættfræði hrossa og árangri í gegnum tíðina, einnig eru í liðunum fólk sem að veit ýmislegt um allskonar hluti sem eru alveg mjög sértækir og sérstakir svo ekki sé nú meira sagt!
Húsið opnar kl 20:30 og keppnin hefst kl 21:00.
Komdu og skemmtu þér með okkur og styrktu stækkunarsjóð Harðarbóls um leið.
sjáumst Nefndin
 
Keppnin er styrkt af Líflandi, Prjónastofunni Kidka, Ullmax, Ástund og Á Fáksspori.
Við viljum koma á framfær þökkum til þeirra,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link