Minnum á sýnikennslu með Jakobi, nýkrýndum slaktauma og ístöltsmeistara.
„Á miðvikudaginn 10.apríl n.k. kl. 20.30 verður sýnikennsla með Jakobi Sigurðssyni í reiðhöllinni í Borgarnesi. Þar sem Jakob sýnir þjálfunaraðferðir sem hann notar. Jakob þarf vart að kynna, hann er einn okkar besti keppnis- og sýningarknapi. Var valinn íþróttaknapi 2012, m.a. tvöfaldur Íslands meistari.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri sem þarna gefst. Að lokinni sýnikennslu verður kynning á hinni nýju keppnisgrein Töltfimi. Trausti Þór Guðmundsson mun þar miðla af sinni alkunnu snilld.
Miðaverð er kr. 2.500 , börn 6-12 ára kr. 1.000, yngri enn 6 ára frítt innifalið í miðaverði er happdrættismiði og eru margir góðir folatollar í vinning.
Abraham f. Lundum, Aldur f. Brautarholti, Blær f. Hesti, Blær f. Torfunesi, Brjánn f. Blesastöðum, Dynur f. Hvammi, Fálki f. Geirshlið, Hákon f. Ragnheiðarstöðum, Hrynur f. Hrisdal, Huginn f. Haga, Klettur f. Hvammi, Leiknir f. Vakurstöðum, Sólon f. Skáney, Straumur f. Skrúð, Taktur f. Stóra-Ási, Uggi f. Bergi, Þytur f. Skáney.
Allur ágóði rennur til reiðhallarinnar Faxaborgar.“ segir í tilkynningu frá stjórn Faxaborgar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH