Kynbótasýningar Hetja hæst dæmda sex vetra hryssa í heimi

  • 2. júní 2025
  • Fréttir
Kynbótasýningar halda áfram í dag

Í dag halda kynbótasýningar áfram en þessa vikuna verður dæmt á tveimur stöðum annars vegar á Rangárbökkum við Hellu og hinsvegar á Hólum í Hjaltadal. Fyrsta kynbótasýning ársins, sem fram fór í síðustu viku, gefur góð fyrirheit um ræktunarstarfið þar sem fjöldinn allur af frábærum hrossum kom fram.

Eitt af þeim hrossum var Hetja frá Ragnheiðarstöðum sem hlaut 8,83 í aðaleinkunn og er það hæsti dómur sem sex vetra hryssa hefur hlotið frá upphafi. Fyrir var það Díva frá Austurási en hún hlaut 8,77 í aðaleinkunn árið 2022.

Hetja er undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Hendingu frá Úlfsstöðum en ræktandi er Helgi Jón Harðarson og eigandi Birgir Már Ragnarsson og HJH Eignarhaldsfélag ehf.

Hér fyrir neðan er dómur Hetju

IS2019282573 Hetja frá Ragnheiðarstöðum
Örmerki: 352098100066286
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Helgi Jón Harðarson
Eigandi: Birgir Már Ragnarsson, HJH Eignarhaldsfélag ehf
F.: IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti
Ff.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Fm.: IS1997287737 Þyrla frá Ragnheiðarstöðum
M.: IS1997258874 Hending frá Úlfsstöðum
Mf.: IS1991138001 Jarl frá Búðardal
Mm.: IS1990258875 Harka frá Úlfsstöðum
Mál (cm): 146 – 135 – 139 – 64 – 143 – 37 – 49 – 45 – 6,4 – 28,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,7 – V.a.: 8,0
Sköpulag: 9,5 – 9,0 – 9,5 – 9,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 7,5 = 8,90
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 = 8,79
Hægt tölt: 8,5

Aðaleinkunn: 8,83
Hæfileikar án skeiðs: 8,85
Aðaleinkunn án skeiðs: 8,86
Sýnandi: Þorgeir Ólafsson
Þjálfari:

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar