Framtíð Landsmóta
Landssamband Hestamannafélaga og Bændasamtök Íslands standa fyrir vinnufundi um framtíð Landsmóta hestamanna. Markmið vinnufundarins er að félagsmenn komi saman til að móta stefnu varðandi Landsmót. Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (sal E), laugardaginn 17.okt. nk. kl. 10.00 – 15.00
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
10.00 SETNING VINNUFUNDAR
10.05 DAGSKRÁ OG VINNULAG Fundarstjóri: Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
10.15 ERINDI
10.45-14.50 HÓPAVINNA Unnið verður í fljótandi hópum að því að ræða neðangreind efni og svara spurningum þeim tengdum. Gert er ráð fyrir 30 mínútna umræðum um hvert mál í hópunum og 15 mínútum í kynningu á niðurstöðum. Sérstakir hópstjórar hafa yfirumsjón með starfi hópanna.
Viðfangsefni hópanna eru:
- Tilgangur Landsmóta (kl. 10.45-11.30)
- Fyrir hverja er LM
- Hverju viljum við ná fram
- Viljum við fjölga gestum – erlendum og innlendum
- Keppendur á Landsmótum (kl. 11.40-12.25)
- Hverjir hafa þátttökurétt
- Á að breyta úrtökum
- Á að skipta upp kynbóta og gæðingakeppninni
12.30-13.15 MATARHLÉ
- Dagskrá og afþreying á Landsmótum (kl. 13.15-14.00)
- Á að hafa aðra afþreyingu en hestamennsku á LM
- Á að stytta/lengja dagskrá
- Á að breyta timasetningunni
- Umgjörð Landsmóta (kl. 14.10-14.55)
- Eigum við að hafa einn þjóðarleikvang íslenska hestsins
- Þurfa öll LM að vera eins
14.55 STUTT SAMANTEKT
15.00 VINNUFUNDI SLITIÐ
Hvert hestamannafélag hefur rétt á að senda 2 fulltrúa á fundinn, en þau félög sem hafa 500 félaga eða fleiri geta sent 3 fulltrúa. Skráning fer fram á skrifstofu LH, vinsamlega sendið inn staðfestingu á mætingu á netfangið[email protected] fyrir 2.október n.k.
Við viljum hvetja fundarmenn til að að koma undirbúna til fundarins og huga sérstaklega að þeim viðfangsefnum og spuriningum sem verða til umfjöllunar á fundinum.
Styttu haustið með EiðfaxaTV