Ný stjórn Borgfirðings

Ný stjórn hestamannafélagsins Borgfirðings. F.v. Elísabet Ýr, Eyþór Jón, Friðrika, Haukur Þór, Þorsteinn, Heiða Dís og Ísólfur. Á myndina vantar Ólaf Axel Björnsson.
Í gærkvöldi fór fram almennur félagsfundur hjá hestamannafélaginu Borgfirðingi en boðað var til fundarins í síðustu viku í kjölfar þess að tillaga um vantraust á stjórn hafði borist þar sem yfir 10% félagsmanna rituðu nafn sitt undir. Áður hafði fyrrum formaður félagsins, Eyþór Jón Gíslason, sagt af sér sem formaður félagsins.
Fjölmenni var mætt á fundinn í gær og ljóst að þungur tónn var undirliggjandi. Vantrauststillagan kom aldrei til atkvæðagreiðslu þar sem stjórnarmenn sem enn sátu sögðu af sér áður en til þess kom. Fór fram stjórnarkjör á nýrri stjórn til bráðabirgða eða fram að næsta aðalfundi félagsins.
Eftirfarandi einstaklinga mynda því nýja stjórn hestamannafélagsins Borgfirðings, Elísabet Ýr Egilsdóttir, Eyþór Jón Gíslason, Friðrika Ásmundsdóttir, Þorsteinn Hjaltason, Heiða Dís Fjeldsted, Ísólfur Ólafsson, Ólafur Axel Björnsson og Haukur Þór Hauksson sem jafnframt er nýr formaður.