Skuggi frá Sumarliðabæ tekur á móti hryssum á Sumarliðabæ

  • 14. júní 2025
  • Fréttir

IS2019181522 Skuggi frá Sumarliðabæ 2 tekur á móti hryssum í hólf á Sumarliðabæ .

Skuggi var sýndur í vor og hlaut þar 8.56 í aðaleinkunn, þar af hlaut hann 8.62 fyrir hæfileika þar af 9,0 fyrir tölt, brokk, hægt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið og hægt tölt.
Skuggi er stórglæsilegur er 1,47 cm á herðar og hlaut 8.46 í byggingu þar af 9,0 fyrir samræmi.

Skuggi er sterkættaður en hann er undan heiðursverðlaunahestinum Skýr frá Skálakoti og Bylgju frá Einhamri (8.45) sem er dóttir heiðursverðlaunahrossana Stála frá Kjarri og Gustu frá Litla-Kambi. Undan Bylgju hafa einnig komið Alda frá Sumarliðabæ (9,00 f. hæfileika) og Anastasía frá Sumarliðabæ ( 8.73 f. hæfileika)

Skuggi er algjör yfirburðarmeistari sem manni hlakkar til að fara à bak á á hverjum degi, léttur í beisli og með skemmtilegan vilja.

Allar nánari upplýsingar veita Ólafur s:8461542 og Birgitta s:8483979

Verð 150.000+vsk

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar