Bergþór og Lótus fljótastir-
Þeir þurfa að taka á honum stóra sínum, keppendur í 250 metra skeiði ætli þeir að hirða heimsmeistaratitilinn af Bergþóri Eggertssyni og Lótusi van Aldenghoor. Eftir fyrstu tvo spretti af fjórum eiga ríkjandi heimsmeistarar besta tímann, og eru tæpri sekúndu á undan næsta keppanda, Guðmundi Einarssyni og Sprota frá Sjávarborg.
Okkar maður, Elvar Einarsson á Kóngi frá Lækjarmóti fór einn gildann sprett upp á 22,89 sekúndur og er í 4. sæti sem stendur, aðeins brotabroti á eftir Taniu H. Olsen og Sólon frá Stro.
Það verður spennandi að sjá seinni sprettina en umferðinar tvær verða farnar á morgun kl. 15.
Eins og öll úrslit HM í Austurríki má sjá tímana í tveimur fystu umferðunum á HM vef Eiðfaxa
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH