Þrír knapar bætast við U21 hópinn

Landsliðsþjálfararnir fylgjast nú grant með framvindu mála en Reykjarvíkurmeistaramótið var annað af tveimur skyldumótum landsliðsknapanna.
Hekla Katharína þjálfari U21 hefur nú ákveðið að bæta þremur knöpum í U21 hópinn. Þessir knapar stefna að sjálfsögðu á Heimsmeistaramót íslenska hestsins og hafa á tímabilinu vakið athygli landsliðsþjálfara fyrir góðan árangur. Þau munu mæta með hesta sína á Íslandsmót ungmenna sem hefst í næstu viku.
Bætast þau inní U21 árs landsliðshópinn og hann skipa því orðið 19 knapar.
Knaparnir eru :
- Eik Elvarsdóttir, hestamannafélagið Geysir
- Guðrún Lilja Rúnarsdóttir, hestamannafélagið Hörður
- Ragnar Snær Viðarsson, hestamannafélagið Fákur
