Skráning hafin á Reykjavíkurmeistaramót
Skráning á Reykjavíkurmeistaramótið sem haldið verður 4.-8 maí nk.
Skráningu er hægt að senda á netfangið [email protected] og verður hægt að senda skráningar til miðnættis í kvöld 26. Apríl að er fram kemur í fréttatilkynningu frá Fáki.
Í dag verður einnig tekið á móti skráningum á skrifstofu Fáks milli kl. 13-20 og í gegnum síma 567-0100, 898-8445, 840-1504, 898-2018 á sama tíma.
„Eftirfarandi upplýsingar þurfa að vera til að hægt sé að taka á móti skráningunni: IS númer hests, kt. og nafn knapa, Hestamannafélag, Keppnisgrein, Keppnisflokkur, Upp á hvora hönd er riðið. Kortanúmer fyrir greiðslu skráningargjalda
Munið að allar breytingar á skráningu eftir að skráningarfresti lýkur kosta 1000 kr. Vinsamlegast reynið að hafa skráningarupplýsingar réttar.
Ráslistar verða síðan birtir um leið og færi gefst til.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH