Íslandsmót byrjar í dag

Mótið byrjar á keppni í fjórgangi í meistaraflokki og eftir kaffihlé byrjar ungmennaflokkurinn. Um kvöldið verður síðan keppt í gæðingaskeiði í meistara- og ungmennaflokki og kemur í ljós hverjir hljóta fyrstu Íslandsmeistaratitlana.
Mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
Íslandsmótið er líka síðasta mótið sem landsliðsþjálfararnir eru að horfa til við val á hópnum sem fer á Heimsmeistaramót íslenska hestsins 4.-11. ágúst í Sviss. Hópurinn verður tilkynntur 11. júlí en tólf knapar keppa í fullorðinsflokki á HM og fimm í ungmennaflokki. Þar að auki eiga sjö þeirra titil að verja.