Hryssurnar sæddar heima hjá sér

  • 25. júní 2025
  • Fréttir
Fjöldi sæðingastöðva hefur aukist síðust ár og eru þær nú í kringum tíu talsins.

Á Þúfum í Skagafirði er ein slík stöð en þar er aðallega tekið sæði úr stóðhestunum sem er síðan sent hvert á land sem er.

„Um helgina fóru t.d. skammtar til Hornafjarðar og höfum við einnig verið að senda suður í Ölfusið. Þá er dýralæknir þar búinn að vera fylgjast með hryssunni og kallar eftir sæði þegar tími er kominn til að sæða hryssuna. Ferð fyrir sæðið er síðan fundin í sameiningu,“ segir Mette Mannseth hrossaræktandi á Þúfum.

Bjóða upp á svokallaðar heimasæðingar

Á Þúfum eru þeir Hannibal (8.68), Grímar (8.80) og Strengur (8.65) frá Þúfum til notkunnar og er sæði úr þeim sent daglega til sæðingastöðvar Ingunnar Reynis á Hvammstanga en einnig hefur verið sent sæði til Guðríðar Þórarinsdóttur í Reykjadal á Flúðum.

„Það er nýjung hér í Skagafirði að Margrét Sigurðardóttir dýralæknir, hefur verið að sæða hryssurnar heima hjá sér, svokallaðar “Heimasæðingar”. Hún fylgist með hryssunni á sínum daglega rúnti og kemur með sæði þegar tími er kominn til. Þetta var prófað í mýflugumynd í fyrra og heppnaðist mjög vel. Þetta hefur farið mjög vel af stað í ár og allar hryssur fengið í fyrstu tilraun af þeim sem búið er að skoða.“

Minna álag, tilstand og kostnaður

Telur Mette marga kosti vera við þessa aðferð þ.á.m. minna álag fyrir hryssur og folöldin sem geta verið heima hjá sér í rólegheitunum, minni kostnaður og tilstand fyrir hryssueigendur en ódýrar og auðveldara er að flytja lítinn pakka heldur en hryssu og jafnvel folald.

„Hryssan getur verið heima hjá sér í rólegheitum en allir hestaflutningar eru álag og áhætta, ekki síst með ung folöld. Breytt umhverfi fyrir hryssu og folald er einnig álag, þó það sé verið að vanda allt í kringum það sem ég tel oftast vera tilfellið. Fyrir eigandinn er auðveldara að flytja lítinn pakka en hryssu og jafnvel folald. Einnig er þetta umhverfisvænna, minna slit á vegum og það fer minna eldsneyti. Fyrir okkur sem stóðhestaeigendur er kosturinn að við getum haft hestana heima og þjálfað. Þetta eru jú okkar albestu hestar og frábært að geta haldið áfram að ríða þeim. Það er einnig minna „hryssuálag“ þar sem tekið er úr þeim að hámarki einu sinni á dag og alltaf vitað að hryssan sem hann fer á er tilbúin,“ segir Mette en bætir þó við að auðvitað er líka þægilegt að fara með hryssu á sæðingastöð þar sem tekið er á móti hryssunni og hugsað um allt fyrir þig og eina sem eigandinn þarf að gera er bara að sækja hana vonandi fengna.

Algengt erlendis

Hér á Íslandi eru einungis dýralæknar með leyfi til að sæða hryssur og óheimilt er að dreifa sæði og fósturvísum nema frá viðurkenndri sæðingar- eða fósturvísastöð. Hugmyndin af heimasæðingunum kemur erlendis frá þar sem þetta fyrirkomulag er að verða býsna algengt.

„Þetta fyrirkomilag er algengt víða úti og er að aukast þar sem tæknin er að verða betri og betri. Á norðurlöndunum má eigandin til dæmis sjálfur sæða ef hann fer á sæðinganámskeið. Í Bandaríkjunum má hann meira að segja sónarskoða sínar hryssur eftir námskeið.“

Fyrir áhugasama sem langar að fá Margréti dýralækni (s: 8947558) til að sæða sýna hryssu geta haft samband við hana en eins og er er Margrét einungis með heimasæðingar í Skagafirði.

„Ef þú ert annarsstaðar á landinu finnur þú dýralækni nálægt þér, sem kann til verka að staðsetja egglos og sæða hryssu, og semur við hann. Þú hefur svo samband við okkur þegar styttist í egglosið og við finnum ferð fyrir sæðið í sameiningu. Ferðin þarf helst að fara samdægurs og á að sæða hryssuna eða daginn áður. Það er reyndar líka komin tækni sem gerir að sæðið lifir lengur sem gerir margt auðveldara.“

Notkunarupplýsingar og verð

Hjá þeim Mette og Gísla á Þúfum eru þeir Hannibal, Grímar og Strengur í boði en að fá sent sæði kostar fyrir fyljaða hryssu (öll verð m. vsk.);

Hannibal 180.000 kr.
Grímar 160.000 kr.
Strengur 160.000 kr.

Ef hryssan fyljasst ekki er bara greitt 15.000 kr. sem er kostnaðurinn fyrir íblöndunarefni og annað sem fylgir sæðistökunni. Sent er eins oft og þarf í hverja hryssu án auka kostnaðar og ef þú ert með fjórar hryssur fylfullar við hestana frá Þúfum eftir sumarið borgar þú ekki ódýrasta folatollinn.

„Hjá heimasæðingum Möggu kostar 60.000, með öllu. Þá er innifalið að hún fylgist með hryssunni til að staðsetja egglos, sæðir og fyl skoðar síðan. Það eru tvö gangmál á hryssu innifalið.“

Við hvern á að hafa samband?
Til að fá sent: Mette 8338876, Gísli 8977335 eða thufur@thufur.is

Sæðingastöð sem tekur við hryssum: Syðri-Vellir við Hvammstanga, Ingunn Reynisdóttir 8932835

Heimasæðingar Möggu í Skagafirði: sími: 8947558

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar