Íslandsmótin verða haldin saman
Stjórn LH hefur fallist á ósk Hestamannafélags Spretts um að halda bæði Íslandsmótin saman í sumar. Áður hafði LH hafnað ósk Sprettara um að halda bæði Íslandsmót barna og unglinga ásamt Íslandsmóti fullorðinna á sömu dagsetningum.
Bæði Íslandsmót barna, unglinga og fullorðinna verður því haldið á félagssvæði Spretts í Kópavogi dagana 9. – 12. júlí í sumar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH