Kynningarfundir vegna HM 2013
Íslandsstofa í samvinnu við skipuleggjendur Heimsmeistarmóts íslenska hestsins í Berlín 2013, bjóða verða með kynningarfundi í byrjun nóvember þar sem Heimsmeistarmótið og sýningar- og sölusvæðið verða sérstaklega kynnt.
„Heimsmeistaramót íslenska hestsins árið 2013 verður haldið í fyrsta skipti í miðri stórborg. Mótið verður haldið á fallegum stað í Berlín í Þýskalandi dagana 4. – 11. ágúst. Búist er við a.m.k. 20.000 gestum frá 19 þjóðlöndum.
Laugardaginn 5. nóvember verður fundur kl. 14 á Hótel Íslandi/Park Inn, Ármúla 9. Þessi kynning er eingöngu ætluð fyrirtækjum sem bjóða upp á hestatengdar vörur og þjónustu.
Mánudaginn 7. nóvember verður fundur kl. 14 að Borgartúni 35, 6. hæð. Kynningin er ætluð öllum öðrum fyrirtækjum og einstaklingum.
Á fundunum munu fulltrúar HM í Berlín fara yfir skipulag mótsins og kynna sérstaklega sýningar- og sölusvæðið. Fulltrúar Íslandsstofu munu einnig kynna þá fjölbreyttu möguleika sem í boði eru fyrir íslensk fyrirtæki.
Áhugasamir skrái sig á [email protected] eða í síma 511-4000 fyrir 3. nóvember.
Upplýsingar um mótið má finna á vefslóðinni www.berlin2013.de.
Nánari upplýsingar veita Berglind Steindórsdóttir, [email protected] og Aðalsteinn Haukur Sverrisson [email protected] eða í s. 511-4000.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH