Námskeið í hestanuddi

  • 25. febrúar 2013
  • Fréttir
Námskeið í hestanuddi

„Hestamiðstöðin Hestasýn í Mosfellsbæ er með mjög áhugavert námskeið í hestanuddi helgarnar:  9-10. mars og/eða  6.-7. apríl.  

 Kennari verður hin sænska Catrin Annica Engström en hún hefur búið og starfað á Íslandi síðan 1989. Hún er með vefsíðuna www.hestanudd.net og þar má finna góða kynningu á áhrif nudds á hesta.

Námskeiðið felur í sér vöðvafræðslu, nuddtækni og vandamálaleit auk sýnikennslu í teygjuæfingum. 

Fyrirhuguð Dagskrá:

Laugardagur: 

9:00  Bóklegur tími. 

12.00  til 13.00  Matarhlé

17.00  Áætluð lok  

Sunnudagur

10:00.  Verklegur tími hver með sinn hest eða með lánshesta sem eru á staðnum. 

12.00 til 13.00 Matarhlé 

Dagurinn endar svo með sýnikennslu á teygjuæfingum um kl. 16.00

Þátttökugjaldið er kr. 16.000, .

Hámarksfjöldi er 8-10 til manns á námskeið.  

Staðsetning er í Hestamiðstöðinni, Hestasýn , Blíðubakka 2 í Mosfellsbæ.

 

Skráning og frekari upplýsingar er í gegn um netfangið:  [email protected]  eða í sima 898-0247,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link