Árshátíð hestamanna á Vesturlandi

  • 17. október 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hljómsveitin B4 leikur fyrir dansi.

Laugardaginn 15. nóvember næstkomandi ætla hestamenn af öllu Vesturlandi að hópast að Laugum í Sælingsdal til að gera sér glaðan dag. Dagskrá eftir hádegið á laugardeginum er í vinnslu og verður auglýst síðar en þó má nefna að hægt verður að komast í sund og að nota íþróttahúsið.

Veislumatseðill að hætti Gunnars Björnssonar:

Forréttur: Blandaðir sjávarréttir á salatbeði
Aðalréttur: Lambafillet – kjúklingabringa

Veislustjóri: Lárus Ástmar Hannesson

Hljómsveitin B4 leikur fyrir dansi

Helstu verð:

Matur og dansleikur: 5.500 kr.

Tveggja manna herbergi: 11.000 kr.

Eins manns herbergi: 8.000 kr.

Ódýrari gisting verður einnig í boði (wc frammi á gangi) og jafnvel gisting í óuppbúnum rúmum eftir því hvernig eftirspurnin verður.

Morgunverður: 1.500 kr.

Pantanir:

Eyþór Jón Gíslason, [email protected] eða 898 1251

Þórður Ingólfsson, [email protected]eða 893 1125

Það er um að gera að panta sem fyrst en pantanir þurfa að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 11. nóvember.

Athugið að það verða ekki vínveitingar á staðnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link