Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Auglýst eftir liðum í Meistaradeildina fyrir árið 2026

  • 11. september 2025
  • Fréttir
Meistaradeildin í hestaíþróttum óskar eftir umsóknum frá liðum sem hafa áhuga á að taka þátt í mótaröð deildarinnar keppnisárið 2026.

Lokafrestur til að skila inn umsókn var 30. ágúst 2025 en stjórn hefur ákveðið að lengja þann frest til 20. september næstkomandi.

Umsókn skal senda á netfangið info@meistaradeild.is.
Í umsókn þarf að koma skýrt fram hverjir eru liðseigendur og hverjir eru knapar liðsins.

Lið með sjálfkrafa þátttökurétt árið 2026:

  • Ganghestar / Margrétarhof
  • Hestvit / Árbakki
  • Hjarðartún
  • Hrímnir / Hest.is
  • Sumarliðabær
  • Top Reiter

Athugið: Lið sem eiga sjálfkrafa þátttökurétt þurfa einnig að staðfesta þátttöku með því að senda tölvupóst á info@meistaradeild.is fyrir 20. september 2025 ásamt að taka fram sína liðsfélaga.

Leikreglur Meistaradeildarinnar má nálgast á heimasíðu deildarinnar – þær má finna með því að smella HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar