Friðrik hættir sem forstöðumaður Top-Reiter hallarinnar
Á fundi Reiðhallarnefndar Léttis í gær var gerður starfslokasamningur við Friðrik Kjartansson að hans eigin ósk, að er fram kemur í fréttatilkynningu frá nefndinni. Friðrik hefur starfað sem forstöðumaður Top-Reiter reiðhallarinnar undanfarin ár.
„Stjórn Hestamannafélagsins Léttis og Reiðhallarnefnd þakkar Friðrik fyrir frábær störf fyrir félagið sem og samstarf og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Friðrik mun vera Reiðhallarnefnd innan handar við ýmis mál er viðkoma Reiðhöllinni þar til nýr starfsmaður/starfsmenn hafa verið ráðnir.
Reiðhallarnefnd og stjórn félagsins eru að hefja viðræður við Akureyrarbæ um endurnýjun á rekstrarsamningi vegna hallarinnar með það að markmiði m.a. að auka stöðugildi í 2 í húsinu, vonandi munu þessi mál skýrast á allra næstu dögum. Ákveðið hefur verið að Reiðhöllin verði lokuð áfram þar til annað verður ákveðið,“ segir í tilkynningunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH