Opið Karlatölt í Herði
Opið karlatölt Útflutningsþjónustu Eysteins Leifssonar, verður haldið í reiðhöll Harðar föstudagskvöldið 5. mars. Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Opinn flokkur, 1. flokkur og 2. flokkur.
Tekið verður við skráningum í síma 566-8282 miðvikudags kvöld 3 mars kl 20:00 – 22:00. Aðeins tekið við símgreiðslum eða skráð á staðnum.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH