Hestamaður ársins 2025 – tekið er við tilnefningum!

  • 21. nóvember 2025
  • Fréttir
Lesendur Eiðfaxa eru hvattir til að senda inn hverjir þeir telja að eigi nafnbótina skilið

Lesendum Eiðfaxa gefst nú færi á að útnefna manneskju ársins 2025 úr röðum hestafólks og allra þeirra sem hafa einhverja tengingu við hestamennsku. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn hverjir þeir telja að eigi nafnbótina skilið.

Eiðfaxi hvetur sérstaklega til þess að þeir aðilar sem vinna óeigingjarnt starf fyrir hestamennskuna í formi sjálfboðavinnu eða þeir sem unnið hafa einstök afrek á árinu hljóti tilnefningar.

Tekið er við tilnefningum með því að smella á þennan link HÉR. Frestur til að tilnefna rennur út sunnudaginn 16. desember á miðnætti. Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem maður ársins.

Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Á milli þeirra fimm sem fá flestar tilnefningarnar fer svo fram atkvæðagreiðsla á vef Eiðfaxa. Manneskjan sem verður fyrir valinu verður heiðruð í lok árs.

Þetta er í fjórða skipti sem Eiðfaxi stendur fyrir vali á manni ársins úr röðum hestamanna og verður spennandi að sjá hver hlýtur þann heiður árið 2024. Við á Eiðfaxa vonumst eftir góðri þátttöku.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar