Ræktunarveisla á Flúðum

  • 16. apríl 2011
  • Fréttir
Ræktunarveisla á Flúðum

Hrossaræktarfélag Hrunamanna gekkst fyrir ræktunarsýningu í reiðhöllinni á Flúðum 15 apríl.

Sýnd voru hross frá fjórum búum í sveitarfélaginu auk allnokkura aðkomuhrossa. Einnig hlupu nokkrir ungfolar um völlinn og gáfu góðar vonir. Í búsýningum komu fram hross úr ræktun Ernu Óðinsdóttur  og Helga Kjartanssonar Hvammi I, frá Efra – Langholti, Túnsbergi og fjögur afkvæmi Gjósku frá Miðfelli 5. Þau Kristbjörg  og Gunnar á Grænhól gáfu æskulýðsnefnd Smára folatoll undur Svein Hervar og sýndir voru tveir synir hans í reið en hesturinn verður notaður í Hrunagirðingu í sumar.

Börn úr Smára komu með skemmtilega sýningu en æskylýðsstarf félagsins er öflugt.

Þessi sýning var sú fyrsta hjá ræktunarfélaginu og var einskonar æfing fyrir öfluga sýningu á 100 ára afmæli Hrossaræktarfélagsins eins og einn sýningargestur sagði en þeir voru fjölmargir.  

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link