Heyskortur á Norðurlandi
Heyskortur í sveitum Norðurlands kemur illa við þá bændur og hestamenn sem eru með stór hrossastóð. Í kjölfarið hafa hrossabændur þurft að grípa til þess ráðs að slátra hrossum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Búgarðs sem er ráðgjafarþjónusta bænda, segir þar að ástæðan sé léleg spretta í vor í Þingeyjarsýslum og hluta Eyjafjarðar. Sumir bændur hefðu misst hána undir snjó í haust og fóðurgildi hennar rýrnaði verulega.
„Bændur setja minna fé á og slátra fleiri kálfum en annars hefði orðið. Þá eru hrossabændur duglegir við að reyna að koma hrossum í sláturhús,“ segir Vignir í samtali við Morgunblaðið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH