Tilnefningar til hestamanns ársins
Nú þegar hafa borist fjölda tilnefninga til hestamanns ársins á vef Eiðfaxa en tilnefningarfrestur rennur út á sunnudagskvöld, 14.desember, á miðnætti. Tekið er við tilnefningum með því að smella á þennan link HÉR.
Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem maður ársins.
Eiðfaxi hvetur sérstaklega til þess að þeir aðilar sem vinna óeigingjarnt starf fyrir hestamennskuna í formi sjálfboðavinnu eða þeir sem unnið hafa einstök afrek á árinu hljóti tilnefningar.
Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Á milli þeirra fimm sem fá flestar tilnefningarnar fer svo fram atkvæðagreiðsla á vef Eiðfaxa. Manneskjan sem verður fyrir valinu verður heiðruð í lok árs.
Þetta er í fjórða skipti sem Eiðfaxi stendur fyrir vali á manni ársins úr röðum hestamanna og verður spennandi að sjá hver hlýtur þann heiður árið 2025.
„Okkur líður vel í Svíþjóð og höfum komið okkur vel fyrir“
„Við skuldum Íslandsmóti að gera þessa tilraun“
Horses of Iceland og Landsmót hestamanna gera samstarfssamning