Leitað eftir atriðum á stórsýningu Fáks

  • 26. apríl 2011
  • Fréttir
Leitað eftir atriðum á stórsýningu Fáks

Hin árlega stórsýning Fáks fer fram í reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 30. apríl nk. kl. 21.

Á heimasíðu Fáks kemur fram að unnið sé að undirbúningi sýningarinnar og dagskráin sé að mótast. Leitað er að áhugaverðum og skemmtilegum atriðum og geta þeir sem luma á slíku haft samband við sýningarstjórann Magnús Benediktsson í síma 893 3600 og á netfangið [email protected]

Miðaverð á sýninguna verður 2.000 kr, en frítt verður fyrir 12 ára og yngri. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link