Þrönn frá Prestbæ efst
Þá er síðsumarsýningunni á Akureyri lokið en 39 hross voru sýnd þar af 32 í fullnaðardóm. Þrönn frá Prestbæ er efst með 8,31 í aðaleinkunn. 8,43 fyrir hæfileika og 8,13 fyrir sköpulag. Þrönn er undan Þoku frá Hólum (8,64) og Gust frá Hóli (8,57) og er þar af leiðandi systir Þóru frá Prestbæ (8,77) og Þey frá Prestbæ (8,46).
Önnur er Freyja frá Flagbjarnarholti neðra en hún hefur hlotið 8,09 í aðaleinkunn þar af 8,06 fyrir sköpulag og 8,10 fyrir hæfileika. Freyja er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum (8,34) og Krás frá Laugarvatni (8,13). Þriðji er Öngull frá Efri-Rauðalæk en hann hefur hlotið 8,04 í aðaleinkunn þar af 8,11 fyrir sköpulag og 8,00 fyrir hæfileika. Öngull er undan Krók frá Efri-Rauðalæk (8,38) og Sögu frá Þverá í Skíðadal (8,21).
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH