Toyota Selfossi býður frítt í stúkuna á Meistaradeildina
Keppni hefst kl. 19:00, fimmtudaginn 22. janúar og í fyrra var það Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðstöðum sem sigraði með nokkrum yfirburðum.
TOYOTA SELFOSSI býður frítt í stúkuna í HorseDay höllina og ÁB veitingar munu bjóða upp á hlaðborð sem færir ykkur einnig frátekið sæti í stúkunni á besta stað ef pantað er fyrirfram. Tilvalið er að mæta með vinum eða fjölskyldu og eiga skemmtilega kvöldstund með bestu gæðingum landsins. Húsið opnar kl. 17:00 og fara pantanir fram á hlaðborðið HÉR.
Fyrir þá sem komast ekki í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is þar sem hægt verður að fylgjast með keppninni ásamt áhugaverðum viðtölum og kappkostað er að senda stemninguna úr höllinni heim í stofu!
Toyota Selfossi býður frítt í stúkuna á Meistaradeildina
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur