Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Meistaradeild Líflands í beinni í kvöld á EiðfaxaTV

  • 22. janúar 2026
  • Fréttir
Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands í kvöld. Nældu þér í áskrift í tæka tíð.

Mikil eftirvænting ríkir á meðal hestamanna ár hvert er Meistaradeild Líflands hefur göngu sína. Það má því búast við fullu húsi í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli í kvöld og þúsundum manna fyrir framan sjónvarpsskjáinn að fylgjast með í beinni á EiðfaxaTV.

Keppni hefst kl. 19:00 og ráslisti kvöldsins gefur til kynna að þetta stefnir í hörkukeppni. Eins og áður segir er hægt að fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV og mælum við með að næla sér í áskrift sem fyrst.

Á EiðfaxaTV er hægt að velja fjórar mismunandi leiðir til að horfa á keppnina; með íslenskum þul, enskum þul, þýskum þul og einungis með vallarþul.

 

Tryggðu þér ársáskrift að EiðfaxaTV strax í dag og vertu með frá upphafi keppnistímabilsins, því nóg er framundan!

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar