Grill og Gæðingakeppni í Mánagrund

  • 26. maí 2011
  • Fréttir
Grill og Gæðingakeppni í Mánagrund

Gæðingakeppni og Landsmótsúrtaka hestamannafélagsins Mána verður haldin dagana 4.-5. júní  á Mánagrund.

Laugardaginn 4. júní verða haldnar kappreiðar í léttum dúr og að henni lokinni verður slegið upp grillveislu í Mánahöllinni þar sem gestir geta búist við óvæntum uppákomum.

Verðið í grillveisluna er 1.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn yngri en  13 ára.

Sunnudaginn 5. júlí fer fram gæðingakeppnin og úrtakan.

Keppt verður í :
Teymingaflokk
Pollaflokk
Barnaflokk
Unglingaflokk
Ungmennaflokk
Tamningaflokk 5v og yngri
A-flokk áhugamanna
B-flokk áhugamanna
A-flokk
B-flokk

Skráningargjöld eru  4.500 kr. á grein en í áhugamannaflokkum og tamningaflokk er gjaldið  3.000 kr. Skráningagjald í pollaflokkar kr 1.500 en ekkert gjald er tekið fyrir þáttöku í kappreiðum.

Skráningar fara fram nk. mánudag 30. maí í Mánahöllinni á milli kl. 20 – 21 og í símum 848-6973, 893-0304, 861-2030, 861-0012, 866-0054 og 869-3530.

Við skráningu skulu félagar vera skuldlausir við félagið og eigandi hests verður að vera skráður sem eigandi hans í Worldfeng daginn sem skráning fer fram. Gefa þarf upp kennitölu knapa og IS tölu hests.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link