Ístöltið í Fredrikshavn á laugardaginn

  • 5. febrúar 2026
  • Fréttir

Sigurður hér fremstur á myndinni í stuði. Ljóymynd: Facebook síða Ístöltsins

Viðtal við Sigurð Óskarsson mótshaldara

Laugardaginn 7.febrúar fer hið margrómaða ístölt fram í Fredrikshavn í Danmörku. Mótið hefur fyrir löngu skipað sér sess í keppnisflórunni á meginlandi Evrópu og er einn allsherjar mannfagnaður.

Sigurður Óskarsson er einn af forsvarsmönnum mótsins en hann er að halda viðburðinn í 16.skipti. „Í fyrsta lagi vil ég nefna það að svona viðburð er ekki hægt að halda nema með góðu fólki og mig langar sérstaklega að þakka öllum þeim sem koma að þessu. Þar verður að nefna sjálfboðaliða, dómara, alla þá knapa sem mæta til okkar, margir um langan veg og að sjálfsögðu þeir áhorfendur sem koma. Þá er Jan Michael Madsen ómissandi í öllum undirbúningi enda alvanur viðburðarstjórnandi. Mótið væri ekki haldið nema út af þessu fólki.“

Ístöltið fer eins og áður segir fram næstkomandi laugardag og hefst klukkan 15:00 að dönskum tíma (14:00 á Íslandi) og lýkur um klukkan 23:00 um kvöldið. Keppt er bæði í tölti, fjórgangi og fimmgangi. „Hugsunin á bak við þetta er fyrst og fremst að búa til skemmtilegan viðburð. Stórt markaðstorg er á svæðinu með hinum ýmsu vörum og varningi. Fólk kemur saman skemmtir sér og nýtur góðra hesta. Þá er líka gaman að geta haldið í þessa gömlu góðu íslensku hefð að keppa á ís.“

Þegar viðtalið er tekið voru um 1700 miðar seldir en Sigurður á von á um 2000 manns en segir þá líka að höllin verði troðfull. „Aðstæðurnar hjá okkar eru góðar bæði fyrir áhorfendur og knapa. Okkur hlakkar því mjög til þess að viðburðurinn hefjist eftir þrotalausa vinnu í undirbúningi. Ég segi því bara góða skemmtun.“

Nánar má lesa um viðburðinn á heimasíðunni https://istoelt.dk en þar má segja þátttakendalista þar sem er að finna frábæra hesta og knapa í öllum greinum.

Tryggðu þér áskrift og fylgstu með Ístöltinu í Fredrikshavn á EiðfaxaTV

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar