KB mótaröðin – Opin töltkeppni og fimmgangur
Laugardaginn 10.apríl kl. 12:00 verður opin töltkeppni og fimmgangur í reiðhöllinni í Borgarnesi.
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 7.apríl á netföngin: [email protected], [email protected] eða í s. 691-0280 eða 699-6116. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, nafn knapa, nafn hests,litur hests, aldur hests, lið Skráningargjald er 1500.kr fyrir 1.,2.flokk- og ungmenni. (1.000 kr.fyrir annan hest) 1000 kr.fyrir börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0326-13-004810-4810790399 í síðasta lagi miðvikudaginn 7.apríl annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga.
Liðakeppni (lágmark 3 í liði – opin keppni)
Einstaklingskeppni (opin keppni)
Barna-, unglinga-, ungmenna-, 1.flokkur, 2.flokkur (minna keppnisvanir)
Hvert lið þarf að hafa sitt sérkenni !! Sérstök heiðursverðlaun eru veitt því liði sem þykir hafa sýnt skemmtilegustu liðsheildina.
Fimmgangur (1.og 2.fl): tölt,brokk,fet,stökk,skeið. Tölt:(allir flokkar) hægt tölt,hraðabreytingar,yfirferð.
Besta liðsheildin valin af áhorfendum.
Aðgangseyri 500 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH