„Maður vill alltaf gera betur“
Brynja og Snorri frá Litla-Dal í slaktaumatöltinu í Meistaradeild Líflands. Ljósmynd: Carlon Giese/Meistaradeild
Brynja Kristinsdóttir er einn af þremur nýliðum í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum í ár. Hún steig sín fyrstu skref í deildinni þegar keppt var í slaktaumatölti síðastliðinn fimmtudag. Brynja keppti á Snorra frá Litla-Dal sem er undan Stekki frá Skák og Perlu frá Litla-Dal en þetta var frumraun hans í keppni.
Brynja og Snorri áttu fína spretti þrátt fyrir að reynsluleysið hafi aðeins látið segja til sín þegar leið á keppnina. „Tilfinningin var góð, það er mjög gaman að fá að taka þátt í Meistaradeildinni,“ segir Brynja þegar hún er spurð út í upplifunina af því að ríða inn í brautina í fyrsta sinn. „Ég var að mörgu leyti ánægð með tilfinninguna á frjálsu ferðinni og hæga töltinu, en svo lendi ég í því að hann hleypur svolítið mikið frá mér á slaka taumnum. Hann verður stressaður og fer aðeins að kíkja í kringum sig, sem gerir það að verkum að hann missir jafnvægið tvisvar, sem eru dýr mistök í þessari grein.“
Stígandi í þjálfuninni
Snorri frá Litla-Dal kom í eigu Brynju og fjölskyldu síðastliðið haust. Brynja fann fljótt að í honum bjuggu miklir hæfileikar, en hún var þó ekki viss í byrjun hvort hann yrði tilbúinn í sjálfa Meistaradeild Líflands strax í vetur. „Ég var ekki viss hvort hann yrði endilega klár í að fara beint í Meistaradeildina, enda með enga keppnisreynslu fyrir, en svo gekk þjálfunin bara vonum framar í vetur og það var svo skemmtilegur stígandi í honum. Ég tók hann með mér á æfingar sem gengu mjög vel og það varð til þess að við komumst í liðið,“ útskýrir Brynja. Hún lýsir Snorra sem léttum, næmum og viljugum hesti sem sé mjög skemmtilegur í þjálfun.
„Ég var samt aðeins að fara blint út í þessar aðstæður með hann og ekki viss hvernig hann myndi taka þeim. En ég var bara mjög ánægð með hann að mörgu leyti þó maður vilji alltaf gera betur.“
Góður stuðningur í liðinu
Brynja keppir fyrir lið Hrímnis / Hest.is í vetur, en þar er hún á heimavelli þar sem kærasti hennar, Flosi Ólafsson, hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár.
„Þetta er skemmtilegt lið og góður liðsandi. Flosi hefur verið í þessu liði núna í nokkur ár þannig ég hef verið með honum á æfingum og kynnst liðinu og deildinni í gegnum það,“ segir hún.
Undirbúningurinn fyrir veturinn hefur verið markviss síðan síðasta sumar þegar ljóst var að Brynja myndi taka sæti í deildinni. „Það þarf að huga að því að hestarnir séu komnir í gott form og keppnisgír töluvert fyrr á árinu,“ segir Brynja, sem er hvergi nærri hætt þótt fyrsta grein sé að baki.
Aðspurð um framhaldið segist hún vera full tilhlökkunar fyrir næstu verkefnum. „Ég er mjög spennt fyrir næstu greinum í deildinni þar sem ég mun koma með hross sem ég þekki betur og byrjaði að keppa á á síðasta ári með góðum árangri.“
„Maður vill alltaf gera betur“
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Spennandi kvöld framundan í Meistaradeild KS
Fyrsta stórmótið í nýrri reiðhöll Sörla
Ný stjórn kjörin og þrír nýir heiðursfélagar útnefndir