Meistaradeild KS í hestaíþróttum Spennandi kvöld framundan í Meistaradeild KS

  • 9. febrúar 2026
  • Fréttir

Katla Sif Snorradóttir og Sæmar frá Staholfi unni keppni í fjórgangi í Meistaradeild KS í fyrra en ljóst er að nýr sigurvegari verður krýndur í ár. Ljósmynd: Carolin Giese

Reyndir knapar og nýjar stjörnur mætast á Króknum.

Biðin er á enda því fyrsta mótið í Meistaradeild KS í hestaíþróttum fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki næstkomandi miðvikudag, þann 11. febrúar. Keppt verður í fjórgangi og verður flautað til leiks klukkan 18:00. FISK seafood býður alla áhorfendur velkoma í Svaðstaðahöllinni og er fólk hvatt til þess að mæta og njóta kvöldsins saman.

Mörg ný og spennandi pör

Ráslistinn hefur nú verið kunngjörður og er ljóst að veislan verður vegleg, en alls eru 27 knapar skráðir til leiks. Þegar rennt er yfir keppendalistann má sjá skemmtilega blöndu þar sem sumir af okkar reynslumestu knöpum etja kappi við unga og efnilega knapa sem eru að stíga sín fyrstu skref á þessu stóra sviði.

Það sama má segja um hestakostinn, en þarna munu koma fram mörg keppnishross sem áhugamenn um hestaíþróttir hafa ekki oft borið augum, eða jafnvel aldrei séð áður í keppni af þessari stærðargráðu. Það er því alltaf spurning hvaða nýju stjörnur gætu fæðst í Svaðastaðahöllinni á miðvikudagskvöldið.

Fáir af þeim hestum sem voru í úrslitum í fjórgangi í Meistaradeild KS í fyrra eru skráðir til leiks núna sem gerir keppnina enn opnari. Það er þó ekki algilt og má finna öfluga fulltrúa frá fyrra ári.

Af þeim sem skráð eru til leiks náðu bestum árangri í fyrra þau Bjarni Jónasson og Alda frá Dalsholti, en þau höfnuðu í fjórða sæti í A-úrslitum með einkunnina 6,83. Þá voru þeir Þórarinn Eymundsson og Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr sigurvegarar B-úrslita með einkunnina 7,27,  sem hefði dugað til sigurs í A-úrslitum hefðu þeir verið þar á meðal keppenda. Þá er einnig á ráslista að finna Elvar Einarsson og Muna frá Syðra-Skörðugili sem urðu í sjöunda sæti í fyrra með 6,90 í úrslitum.

Í beinni á EiðfaxaTV

Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt á Sauðárkrók er engin ástæða til að örvænta. Mótið verður sýnt í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV og hefst útsendingin samhliða móti klukkan 18:00.

Hvetjum alla hestaáhugamenn til að stilla á Eiðfaxa TV og missa ekki af þessari veislu norðan heiða.

Ráslisti

Nr. Knapi Hestur
1 Magnús Bragi Magnússon Leistur frá Íbishóli
2 Lilja Dögg Ágústsdóttir Döggin frá Eystra-Fróðholti
3 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili
4 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi
5 Sigrún Rós Helgadóttir Kolgrímur frá Eydal
6 Herjólfur Hrafn Stefánsson Ósk frá Glæsibæ
7 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Hrynjandi frá Kviku
8 Elvar Logi Friðriksson Grein frá Sveinatungu
9 Barbara Wenzl Kná frá Engihlíð
10 Agnar Þór Magnússon Eik frá Meðalfelli
11 Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I
12 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kolgríma frá Morastöðum
13 Erlingur Ingvarsson Dimmalimm frá Hrísaskógum
14 Bjarni Jónasson Alda frá Dalsholti
15 Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum
16 Karítas G. Thoroddsen Kveikur frá Litla-Garði
17 Þórarinn Eymundsson Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr.
18 Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum
19 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey
20 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Bára frá Gásum
21 Freyja Amble Gísladóttir Grandi frá Syðri-Gegnishólum
22 Björgvin Helgason Kóngur frá Gunnarsstöðum
23 Kristján Árni Birgisson Stúdent frá Ásmúla
24 Lea Christine Busch Pálmi frá Þúfum
25 Ívar Örn Guðjónsson Hátíð frá Narfastöðum
26 Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum
27 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Flóra frá Dvergasteinum

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar