Hesturinn á Kjarvalsstöðum í sumar-
Þessu ætti enginn listelskandi hestamaður að láta fram hjá sér fara:
Myndlistasýningin Jór! Hestar í íslenskri myndlist fer fram á Kjarvalsstöðum frá 7. maí – 21. ágúst.
„Hesturinn hefur verið viðfangsefni íslenskra myndlistamanna frá upphafi, annað hvort sem aðalviðfangsefni eða í aukahlutverki í landlagsmálverkum og mannamyndum.
Á sýningunni Jór! verða sýnd u.þ.b. 48 málverk og 10 skúlptúrar sem fjalla með ýmsum hætti um það hvernig íslenskir listamenn hafa túlkað tengsl manns og hests í rúma öld, eða frá 1900 til 2010.
Á sýningunni verða verk eftir alla helstu listamenn Íslendinga á þessu tímabili. Sýningunni verður skipt í þrjú þemu: Þarfasti þjónninn; um hversdagsleg samskipti manns og hests, Holdgaður stormur; um hestinn sem náttúru og Hestar með vængi; hinn goðsagnalegi hestur.
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson,“ segir í kynningu um sýninguna.
Ýmsir athyglisverðir viðburðir verða í boði á sýningartímanum:
Laugardaginn 7. maí: Opnun – Úrvalshópur ungmenna á vegum Landssambands Hestamannafélaga mætir við formlega opnun.
Sunnudaginn 8. maí kl. 15: Sýningarstjórinn Aðalsteinn Ingólfsson ásamt Gísla B. Björnssyni hönnuði og höfundi bókarinnar Íslenski Hesturinn sem er yfirgripsmesta verk sem út hefur komið um þetta einstaka hrossakyn, leiða gesti um sýninguna.
Sunnudag 26. júní kl. 15: Fyrirlestur og leiðsögn. Leiðsögumaðurinn og hestakonan Bergljót Rist flytur erindi um litatilbrigði íslenska hestsins. Í kjölfarið verður gengið í gegnum sýninguna. Skipulagt í samvinnu við Landssamband Hestamannafélaga.
Sunnudag 7. ágúst kl. 14: Fjölskyldudagskrá skipulögð í samvinnu við Landsamband Hestamanna.
Laugardag 20. ágúst: Menningarnótt. Fjölbreytt dagskrá.
Leiðsögn á ensku á Kjarvalsstöðum alla fimmtudaga kl. 11, í júní, júlí og ágúst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH