Hestamannafélagið Sprettur Nýr framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Spretts

  • 10. febrúar 2026
  • Fréttir
Að sögn stjórnar bárust margar góðar umsóknir í starfið

Stjórn Hestamannafélagsins Spretts hefur ráðið Berglindi Guðmundsdóttur í fullt starf sem framkvæmdastjóra félagsins. Berglind er öllum hnútum kunnug innan félagsins og býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífinu sem mun nýtast í rekstri þessa fjölmenna félags. Frá ráðningunni segir á vef Spretts.

Reyndur félagsmaður og viðskiptafræðingur

Berglind hefur stundað hestamennsku í mörg ár og er með hesta sína á Hamraenda í dag. Hún er menntaður viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun.

Hún þekkir rekstur Spretts vel af eigin raun: Sat í stjórn félagsins á árunum 2015-2017 og gegndi þar embætti gjaldkera. Hefur sinnt fjölbreyttum sjálfboðaliðastörfum fyrir félagið í gegnum tíðina. Starfar í dag í æskulýðsnefnd Spretts.

Víðtæk reynsla úr fjármálakerfinu

Frá haustinu 2006 hefur Berglind starfað hjá Arion banka og forverum hans. Þar hefur hún sinnt greiningu, verkefnastýringu, samningagerð og gæðamálum. Auk þess hefur hún komið að þróun tölvukerfa og rafrænna lausna, auk þess að sitja í réttindanefnd Landsamtaka lífeyrissjóða og fulltrúaráði VIRK.

Að sögn stjórnar bárust margar góðar umsóknir í starfið og var úr hópi fjölbreyttra og hæfra umsækjenda að velja. Það er því mikill fengur fyrir félagið að fá Berglindi til liðs við sig.

Það mun skýrast á næstu dögum hvenær Berglind hefur störf, en stjórnin hvetur Sprettara og aðra hestamenn til að taka vel á móti henni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar