„Áskorun að fara út fyrir þægindarammann“
Ljósmyndun: Caralin Giese/Lina Images
Fyrsta keppniskvöldið í Meistaradeild KS fer fram í kvöld í Svaðastaðahöllinnin þar sem keppt verður í fjórgangi. FISK Seafood býður áhorfendur velkomna í sal en fyrir þá sem ekki eiga heimangengt verður mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og hefst útsending klukkan 17:50 en keppnin sjálf klukkan 18:00.
Í vetur verður það Guðbjörn Tryggvason sem mun hafa yfirumsjón með deildinni sem þulur og spyrill. Hann mun svo á hverju keppniskvöldi hafa sér til halds og trausts hestafólk að norðan sem munu gera keppninni skil. Guðbjörn er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum auk þess að vera bæði kynbóta- og íþróttadómari. Hann starfar sem tamningamaður að Hólshúsum í Eyjafirði ásamt unnustu sinni, Veru Schneiderchen.
Í kvöld fær hann aðstoð frá Klöru Sveinbjörnsdóttur sem starfar sem reiðkennari við Háskólann á Hólum en hún er ríkjandi sigurvegari í einstaklingskeppni Meistaradeildar KS frá síðasta keppnistímabili.
Í samtali við Eiðfaxa sagði Guðbjörn. „Það verður gaman að fylgjast með Meistaradeild KS í vetur og fyrir mig persónulega er þetta heilmikil áskorun að fara út fyrir þægindaramman og lýsa í beinni útsendingu, vonandi tekst mér að gera það á sem bestan hátt. Það er alltaf spennandi að fylgjast með þessari deild því þar er oft mikill breytileiki á keppendum milli ára, þar sem fjölmargir nemendur við Háskólann á Hólum taka þátt ár hvert í bland við heimafólk. Þar af leiðandi fáum við oft að sjá nýja hesta og spennandi pör.“
Hér má nálgast ráslista fyrir kvöldið.
Nældu þér í áskrift og fylgstu með MeistaradeildKS á EiðfaxaTV
„Áskorun að fara út fyrir þægindarammann“
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar
Nýr framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Spretts
Líflegt starf hjá Hestamannafélaginu Geysi