Hrímnir skiptir um eigendur

  • 14. febrúar 2026
  • Fréttir
Á næstu vikum munu nýir eigendur taka við eignarhaldi á rekstri Hrímnis.

Vörumerki og vörur Hrímnis eru flestum hestamönnum kunn. Vörur Hrímnis eru seldar í gegnum verslanir á öllum helstu mörkuðum fyrir íslenska hestinn, auk þess sem þær eru fáanlegar í vefverslun. Nú er komið að ákveðnum tímamótum hjá félaginu en á næstu vikum munu nýjir eigendur taka við eignarhaldi á rekstri Hrímnis.

„Hrímnir er fjölskyldurekstur sem hefur verið byggður upp af mikilli alúð, þekkingu og ástríðu. Á undanförnum 23 árum hefur Hrímnir orðið eitt sterkasta vörumerkið í heimi íslenska hestsins, bæði hérlendis og erlendis,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum Hrímnis.

Núverandi eigendur sjá tækifæri með sölunni að láta gamla drauma rætast að leggja enn meiri metnað í hrossarækt sína undir nafni Hrímnisholts auk annara hugðarefna á öðrum vettvangi.  Þau munu þó áfram starfa náið með nýjum eigendum Hrímnis og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu rekstursins.

„Með þessu mun Hrímnir stíga mikilvægt skref í átt að aukinni markaðssókn.“

Sænsk fjölskylda kaupir reksturinn

Nýir eigendur eru Östbye-fjölskyldan frá Svíþjóð. „Fredrik og Lena eru vel kunnug íslenska hestinum og munu þau byggja áfram á þeim sterka grunni sem Hrímnir stendur á. Lögð verður rík áhersla á að viðhalda góðum og traustum samskiptum við viðskiptavini og fylgjendur Hrímnis, sem hafa gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og vexti vörumerkisins.“

Grunngildi Hrímnis munu áfram vera leiðarljós í starfseminni, með áherslu á hágæða vörur þar sem velferð hests og knapa er í fyrirrúmi, framþróun í tækni og fágaða hönnun.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar