Upplýsingafundir um Knapamerkin.

  • 8. nóvember 2010
  • Fréttir
Upplýsingafundir um Knapamerkin.

Fundirnir eru ætlaðir reiðkennurum og leiðbeinendum sem eru að kenna eða ætla sér að kenna Knapamerki á næstunni…

Jafnframt eru velkomnir á fundina þeir sem hafa haft séð um skipulag og framkvæmd námskeiða s.s. fulltrúar skóla og fræðslunefnda, umsjónaraðilar reiðhalla og aðrir sem að einhverju leyti bera ábyrgð á framkvæmd og kennslu í Knapamerkjum.
Þau atriði sem komið verður inn á eru m.a.:

•    Staða á endurskoðun Knapamerkjanna og þýðingum
•    Tölfræði úr niðurstöðum prófa sl. ár
•    Reglur og útfærslur er varða próf og prófdæmingar
•    Notkun á gagnabanka
•    Reglur er varða 5. stig Knapamerkjanna sérstaklega
•    Sýnd verða dæmd próf á myndböndum (3, 4 og 5 stig)
•    Annað sem fundagestir vilja ræða

Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum og tímum.
Mánudaginn 8 nóv.         Bændahöllinni v/Hagatorg (3h)    Kl. 20.00
Miðvikudaginn 24 nóv.    Reiðhöllinni Akureyri        Kl. 20.00
Það er mikilvægt að sem flestir prófdómarar og kennarar sjái sér fært að mæta á þessa fundi til að geta aðlagað Knapamerkjakennslu og prófdæmingu að þeim áherslum sem settar eru fram til að auka gæði og samræmingu í Knapamerkjanáminu.
Sjálfsagt er að halda fleiri fundi sé eftir því óskað og þörf á.

Viðkomandi aðilum bent á að hafa samband:
 [email protected] eða í síma: 863-4717
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link